


Falleg innpökkun setur punktinn yfir i-ið á fallegri gjöf Samskipti gerir þér kleift að prenta þinn eigin persónulega gjafapappír fyrir hvaða tilefni sem er, t.d fyrir jólagjafirnar, brúðkaupin, stórafmælin jú eða hver önnur tilefni bæði stór og smá! Hvort sem þú vilt að ljósmyndir eða teikningar prýði gjafapappírinn þá sjáum við um að prenta hann fyrir þig/ykkur! Veldu þínar eigin ljósmyndir og láttu vefsíðuna okkar um alla vinnuna, mjög einföld leið til þess að koma á óvart. Vertu jafnvel enn meira skapandi og bættu við bakgrunni eða skreytingum sem henta tilefninu auk texta. Ef þú treystir þér ekki til að hanna gjafapappírinn þinn bjóðum við upp á fjölda sniðmáta til að velja úr þar sem þú setur inn þínar eigin ljósmyndir. Í augnblikinu bjóðum við upp á tvær stærðir af sérhönnuðum persónulegum gjafapappír, annars vegar 61 cm x 79 cm örk og hins vegar 61 cm x 158 cm. Prentið nær út að brún og við afhendum gjafapappírinn upprúllaðan.


